13/04/2023
70 ára afmælishátíð Menntaskólans að Laugarvatni var í gær og var öll hin glæsilegasta. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að afhenda skólanum gjöf frá nokkrum útskriftarárgöngum, olíumálverk sem ég hef unnið að í vetur af fráfarandi skólameistara, Halldóri Páli Halldórssyni.
Eftir skipulagða dagskrá var gestum boðið í afmæliskaffi og að skoða kennslustofur og heimavistir undir leiðsögn nemenda.
Málverkinu var komið fyrir á 2. hæð skólans, þar sem fyrir eru flott málverk af skólameisturum og öðru starfsfólki skólans. Þar eru verk eftir listamenn eins og Baltasar eldri, Karl Jóhann Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Örlyg Sigurðsson, Guðmund frá Miðdal, Gísla Sigurðsson frá Úthlíð o.fl.
Ég skoðaði oft þessi verk þegar ég var nemandi í skólanum á sínum tíma og lét mig dreyma 🙂
Potrait, oil on canvas. My old school was 70 yesterday and I got the honor of giving the school a commissioned portrait of the retired principal I’ve been painting.