Webmom.eu

Webmom.eu www.webmom.eu - Vantar þig vefmömmu? Samfélagsmiðlar, markaðssetning, kennsla, framleiðsla! Árangur með lifandi miðlun. Stofnað 1998. Lifandi miðlun á netinu.

www.webmom.eu - We adopt your company, small or large...Vi adopterer din virksomhed og vejleder på nettet. Tek í fóstur samskipti og samskiptalausnir. Stefnumörkun, starfsmannaþjálfun, kennsla. Markaðssetning á samfélagsmiðlum. My CV.is online here:
http://bit.ly/LlDCr6

Find me here:
http://www.twitter.com/mariannafridjon
https://plus.google.com/105741397677507393958/posts
http://vimeo.com/maria

nnafridjons
https://www.youtube.com/user/blomalfurinn
http://www.flickr.com/photos/mariannafridjonsdottir
http://pinterest.com/mariannafridjon/

Spillingin á Íslandi er algjörlega einstök. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvaða 2 flokkar eru með Íslandsmet...
25/10/2024

Spillingin á Íslandi er algjörlega einstök. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hvaða 2 flokkar eru með Íslandsmet í þeim gjörningum. Nú á að tryggja Kristjáni, frekasta kalli Íslands sinn hlut fyrir kosningar. Takk þið sem kjósið D og B.

Ummæli forsætisráðherra gefa til kynna að hvalveiðar kynnu að verða leyfðar á næstunni. Ráðherra gaf út leyfi til hvalveiða daginn eftir stjórnarslit árið 2009 og tveir ráðherrar stækkuðu friðunarsvæði eftir kosningar.

Píratar í prófkjöri 2024. Eini flokkurinn sem gefur þér færi á að velja fólk á listann. Smelltu þér inn á https://pirata...
22/10/2024

Píratar í prófkjöri 2024. Eini flokkurinn sem gefur þér færi á að velja fólk á listann. Smelltu þér inn á https://piratar.is/ - Skráðu þig eða loggaðu inn og settu svo endilega Sara Þórðardóttir Oskarsson í fyrsta sætið. Fullt af góðu fólki. Ekki spurning, en mér finnst Sara eiga erindi á þing með sínar áherslur.

Ég er með eina spurningu, sem getur þótt heimskuleg Sólveig Anna Jónsdóttir og Efling. Í þessar frétt https://www.ruv.is...
16/10/2024

Ég er með eina spurningu, sem getur þótt heimskuleg Sólveig Anna Jónsdóttir og Efling. Í þessar frétt
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-10-16-samthykktu-samninginn-med-skilyrdum-um-lausnir-fyrir-1-april-424836
um undirritun kjarasamninga stendur:„Meginkrafa samninganefndar Eflingar var að tekið yrði á mönnunarvanda hjúkrunarheimilanna. Kjarasamningnum fylgdi samkomulag við stjórnvöld sem skuldbindur þau til að bregðast við og leggja fram lausnir þar á eigi síðar en 1. apríl næstkomandi."

Spurning mín er: Þar sem stór hluti hjúkrunarheimila er komin í einkarekstur og eigendur greiða sér út milljarða á meðan starfsfólki er sagt upp - er ætlast til að stjórnvöld leysi þann vanda fyrir eigendurna? Ef þú átt þrjá milljarða í afgang, hversu margir starfsmenn til viðbótar á Eflingarlaunum eru það? Er verið að stilla upp vandamáli, sem eigendur ættu að vera skyldugir til að leysa - eða á almenningur að borga gróðann?
Var bara að velta þessu fyrr mér.

Kjarasamningar Eflingar við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. 93 prósent félagsmanna samþykktu samninginn.

Ef bara við gætum hegðað okkur eins og heilbrigðar líkamsfrumur. Veikar frumur verða að krabbameini. Við, mannfólkið, er...
12/10/2024

Ef bara við gætum hegðað okkur eins og heilbrigðar líkamsfrumur. Veikar frumur verða að krabbameini. Við, mannfólkið, erum að deyja úr græðgi = krabbameinsfrumur á hvort öðru og jörðinni.

Góð grein Steinunnar Ólínu.
“Ágirnd er fíknisjúkdómur, alvarlegur fíknisjúkdómur og ekkert minna alvarlegur sjúkdómur en þeir fíknisjúkdómar sem oftar ber á góma. Sá sem er í fíkn þarf sífellt að fylla upp í tómarúm og þjáist heiftarlega ef þörfinni er ekki fullnægt og reyndar líka þó henni sé fullnægt.”

Erum við manneskjurnar ekki bara hluti af heild? Hefur hvert og eitt okkar ekki það hlutverk að vinna með öðrum svo að allir megi betri framgangs njóta? Svo samfélög megi vera uppbyggjandi þarf eitt að styðja við annað. Er ekki nokkuð augljóst að sú hugsun sé í það minnsta l....

Áhugasöm um dvöl í Portúgal í nóvember?Mig langar að segja ykkur frá því að kær vinkona mín, sem er í meðferð á Íslandi ...
01/10/2024

Áhugasöm um dvöl í Portúgal í nóvember?
Mig langar að segja ykkur frá því að kær vinkona mín, sem er í meðferð á Íslandi (og þess vegna ekki heima), er með íbúð til leigu í nóvember í þeim dásemdarbæ Vila Real St. Antonio.

Íbúðin er algjörlega down town (í lyftuhúsi) og bærinn liggur jú á landamærum Spánar, Portúgalsmegin við fljótið. Passar frábærlega fyrir 2 vinkonur, hjón eða þá sem vilja dvelja í íbúð með 2 svefnherberjum (annað með einbreiðu rúmmi), 2 baðherbergjum, eldhúsi, stofu og svölum af stærri gerðinni.

Þau sem hafa áhuga geta fengið nánar upplýsingar og verð með því að senda mér skilaboð á Messenger.

Smelltu á kortið hér fyrir neðan.

Portugal

Það er öllum sama af því þetta eru bara konur, sama gildir um konur í Suðu-Súdan og víða. 200 milljónir kvenna eru umsko...
21/09/2024

Það er öllum sama af því þetta eru bara konur, sama gildir um konur í Suðu-Súdan og víða. 200 milljónir kvenna eru umskornar í dag, sú tala var 140 fyrir nokkrum árum. Ef Talibanar væru konur og færu svona með karlana, væru menningarsamfélögin á hvolfi við að flytja þá alla úr landi og í skjól. En þetta eru bara kvenmannsdruslur, sumar jafnvel komnar úr barneign. Kynjamorð Talibana er látið gerast óáreitt á meðan fólk fer hamförum yfir forskeytum. En það er víst eðlileg kemisk heilahegðun í ákveðnum tegundum samfélaga.

Það er sem betur fer ekki víða í heiminum sem konum er bannað með lögum að tala og syngja á almannafæri. En þannig er staðan í Afganistan, nú rétt rúmum þremur árum eftir valdatöku talibana.

Mikið óskaplega mega landar vera þakklátir fyrir þá fáu einstaklinga sem vilja enn láta sig "samfélagið" einhverju máli ...
21/09/2024

Mikið óskaplega mega landar vera þakklátir fyrir þá fáu einstaklinga sem vilja enn láta sig "samfélagið" einhverju máli skipta og ræða annað en glimmer. Gerist endilega áskrifendur að fréttabréfinu, flestir verða einhvers vísari.

Á meðan að ríkisstjórnin bíður og vonar það besta – vonar að þetta sé allt að koma – þá hækkar vaxtabyrði sífellt fleiri heimila, vanskil færast verulega í aukana og færri peningar eru til staðar í veskinu til að borga fyrir daglegar nauðsynjar.

Takk Samstöðin fyrir að bjóða uppá þvílíkar konur í fræðandi og eðlilegt tal um stórvandræðin sem við erum búin að skapa...
06/09/2024

Takk Samstöðin fyrir að bjóða uppá þvílíkar konur í fræðandi og eðlilegt tal um stórvandræðin sem við erum búin að skapa alveg sjálf. Must að horfa á viðræðurnar og þær pælingar sem frábærar, ungar konur hafa til málanna að leggja. Mun innihaldsríkara en hanaslagurinn sem oftast er boðið uppá.

„Það er verið að reyna að pensla yfir sannleikann og raunveruleikann, sem er frekar ljótur. Þegar þú keyrir fram hjá …

Síðasti morgun að sinni hér í Altúra. Takk fyrir tímann. Búið að spúla húsið að utan með aðstoð Maríu (Maria Sigurdardot...
04/06/2024

Síðasti morgun að sinni hér í Altúra. Takk fyrir tímann. Búið að spúla húsið að utan með aðstoð Maríu (Maria Sigurdardottir) vinkonu og konan fór í ræsið sér til skemmtunar. Gróðurinn sem vex upp úr malbikinu (eins og við) er frekar þrautseigur, en ég hef það ráð að sjóða á þetta nokkra umganga af vatni og hella yfir, þá er auðvelt að rífa uppá milli flísanna og í rennusteininum. Og svo salta á eftir. Þá er þetta auðvelt verk og heldur lengi. Allt um kring eru gangstéttirnar grónar allskonar, af ýmsum ástæðum.

Buoungavillan er snyrt, hún vex annars eins og frumskógur og þarf að nota marga daga í senn til að halda henni í skefjum. Dásamleg líkamsrækt.

Auðvitað þurfti að prufutjalda og strjúkja yfir tjaldbotninn, eitt skýlið tekur við af öðru. Nestistöskunni pakkað, sorterað í sumargeymsluna og svo er að pakka í bílinn eftir smá og halda af stað. Hvar næturstaður verður næstu nótt, verður lífið bara að stinga uppá þegar þar að kemur.

Leiðin liggur svona cirkabout þvert yfir Spán, upp austurhlutann og til Frakklands að Freiburg og norður miðjuna á Þýskalandi til DK. 3.000 km. Vona bara að þeir séu hættir að sjóða paellur á landamærum Frakklands og Spánar :) - nema maður fái bita.

Ég vil minna á að undirskriftir ríflega 17% kjósenda höfðu engin áhrif á forsætisráðherra hvað varðar baráttumál þjóðari...
30/05/2024

Ég vil minna á að undirskriftir ríflega 17% kjósenda höfðu engin áhrif á forsætisráðherra hvað varðar baráttumál þjóðarinnar fyrir Nýrri stjórnarskrá. Þeir sem vilja áfram að fretað sé á fólk..kjósa auðvitað slíkt. En aðrir gera það ekki og kjósa með hjartanu.

Tæplega 43.500 undirskriftir söfnuðust í undirskriftaherferð Stjórnarskrárfélagsins. Jafngildir það því að um 17% Íslendinga hafi skrifað undir. Katrín Oddsdóttir, formaður félagsins afhenti Katrínu Jakobsdóttur undirskriftalistann klukkan 13 í dag. Hún segir niðurstöðuna f...

Adresse

Frederiksberg

Internet side

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Webmom.eu sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Del