ÓLÍNA design

ÓLÍNA design Sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður, staðsett á Akureyri
BFA í grafískri hönnun

Lokadagur Aðventusýning Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ Opið til kl. 17 í dag🎄✨
03/12/2023

Lokadagur Aðventusýning Norðlenskrar hönnunar og handverks í Hlíðarbæ
Opið til kl. 17 í dag🎄✨

Nýir seglar✨Það eru komnir nýir og endurbættir seglar í Bærinn minn seríuna🤩👏🏼Seglarnir eru nettir og fallegir, 55x80mmÞ...
15/09/2023

Nýir seglar✨

Það eru komnir nýir og endurbættir seglar í Bærinn minn seríuna🤩👏🏼

Seglarnir eru nettir og fallegir, 55x80mm

Það eru komnar 6 tegundir:
• Akureyri
• Hólar
• Ísafjörður
• Sauðárkrókur
• Siglufjörður
• Skagafjörður
Fleiri væntanlegar✨

https://olinadesign.com/product/baerinn-minn-seglar/

Ný vefsíða sem ég hannaði og setti upp fyrir RH Endurskoðun ehf✨Markmiðið var að koma upp einfaldri og stílhreinni vefsí...
21/02/2023

Ný vefsíða sem ég hannaði og setti upp fyrir RH Endurskoðun ehf✨

Markmiðið var að koma upp einfaldri og stílhreinni vefsíðu til að auka sýnileika og bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina.

Ég fékk Annsy með mér í lið og við fórum í skemmtilega heimsókn í RH Endurskoðun þar sem hún tók frábærar ljósmyndir sem hjálpuðu til við að gera síðuna lifandi og persónulega 📸✨

KUALUA POKÉ BAR🥗🥢Fékk það skemmtilega verkefni að hanna matseðil og allskonar fínt fyrir Kualua poké bar✨Think sushi but...
15/02/2023

KUALUA POKÉ BAR🥗🥢

Fékk það skemmtilega verkefni að hanna matseðil og allskonar fínt fyrir Kualua poké bar✨

Think sushi but in a bowl — hljómar ekkert eðlilega vel ef þú spyrð mig!🤩🍣🍚🥢

13/02/2023

Byggðarmerki Húnabyggðar🐻‍❄️

Síðasta sumar sendi ég inn tillögu í hönnunarsamkeppni um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar. 50 tillögur bárust en matsnefnd valdi 4 sem fóru í kosningu íbúa. Mín tillaga varð að lokum fyrir valinu og hefur verið tekin í notkun sem byggðarmerki Húnabyggðar✨

Húnarnir sem prýða merkið hafa beina tengingu í nafn nýja sveitarfélagsins og sögu svæðisins en þeir tákna einnig sameiningu sveitarfélaganna tveggja sem mætast í faðmlagi og mynda Húnabyggð. Bjarnarfaðmurinn táknar hér hlýju, öryggi og samstöðu samfélagsins🤍

Address

Akureyri
603

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÓLÍNA design posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to ÓLÍNA design:

Share