Meðbyr ráðgjöf og almannatengsl

Meðbyr ráðgjöf og almannatengsl UM MEÐBYR

Einar Bárðarson MBA er framkvæmdastjóri Votlendissjóðs og eigandi Meðbyr. Sama plata var lang söluhæsta plata ársins 2005 á Íslandi.

Hann er fyrrum forstöðumaður Höfuðborgarstofu, stærstu markaðsstofu landsins. Hann er jafnframt fyrrum rekstrarstjóri Reykjavík Excursions, ferðaskrifstofu Kynnisferða, sem er eitt umsvifamesta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Hann gegndi stjórnarmennsku í Inspired By Iceland og sat sem varamaður í stjórn Iceland Naturally, eins umfangsmesta viðvarandi markaðsverkefnins Íslendinga í Bandaríkjunum

og Kanada. Þá hefur hann átt sæti í Fagráði ferðaþjónustunar og ferðaskrifstofunefnd SAF svo eitthvað sé nefnd. Einar hafði yfirumsjón með stærstu markaðsrannsókn sem unninn hefur verið fyrir áfangastaðinn Reykjavík. Rannsóknin var unnin fyrir Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, á árunum 2013 til 2015. Niðurstöður þessa starfs; slagorðið og myndmerkið “Reykavík Loves”, var tilnefnt til ÍMARK verðlaunanna 2015. Hann hefur haldið fjölda kynninga, hérlendis sem erlendis, á sérstöðu ferðaþjónstunnar í Reykjavík og á Íslandi og hefur árum saman gegnt margþættu ráðgjafahlutverki á vettvangi ferðaþjónustu, viðburðahalds og markaðsmála, auk þess að gegna starfi framkvæmdastjóra og umboðsmanns fjölda víðþekktra listamanna, þeirra á meðal Garðars Thor Cortes og Kiri de Kawana. Einar var um árabil einn umfangsmesti tónleikahaldari landsins og hefur sú reynsla aflað honum yfirgripsmikillar reynslu í markaðssetningu og stjórnun viðburða, stærri sem smærri. Hann átti og rak Concert hér heima á Íslandi frá árinu 2001 til 2012 og Beliver Music í London á árunum 2005 til 2009. Platan Cortes sem Einar framleiddi og hafði yfirumsjón með upptökum á sat þrjár vikur á toppi lista yfir söluhæstu klassísku plötur Bretlands í apríl 2007 og var tilnefnd til Bresku tónlistarverðlaunanna árið 2008 í flokki klassískra platna. Hann var framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna frá árinu 2001 til 2005. Einar var formaður dómnefndar í Idol Stjörnuleit og X Factor á Stöð 2 á árunum 2005 til 2007. Hann er farsæll lagahöfundur og á árunum í kringum aldamót átti hann fjölda topplaga á Íslandi og framlag Íslands til Eurovision 2001.

Árið 2009 stofnaði Einar útvarpsstöðina Kanann sem breyttist síður í K100. Einar seldi Símanum stöðina í byrjun árs 2011 sem seinna seldi Árvakri eiganda Morgunblaðins og Mbl.is stöðin sem nú rekir hana. Einar hefur stýrt vinsælum útvarpsþáttum bæði á Bylgjunni og nú aftur á K100 eftir að hann seldi stöðina frá sér.

Árið 2018 stofnaði Einar Facebook hópinn Plokk á Íslandi sem telur í dag rúmlega 7000 þátttakendur en hópurinn samanstendur af fólki sem tínir og tekur rusl úr umferð í nær umhverfi sínu og deilir árangrinum með jákvæðum formerkjum. Í gegnum þennan hóp hefur Einar staðið fyrir og skipulagt stóra Plokkdaginn sem haldin er í kringum sumardaginn fyrsta og dag jarðar í lok apríl og hefur verið haldin árlega síðan 2018

Einar var ráðgjafi Símans og Helga Björns við framleiðslu þáttanna Heima með Helga og það er komin Helgi. Þættirnir hlutu verðlaunin Tónlistarviðburður ársins 2020. Einar er aðaleigandi Víkingamótaraðarinnar en meðal keppna í henni eru KIA Gullhringurinn, Hengill Ultra, Landsnet fjallahjólakeppnin og Now Eldslóðin. Hengill Ultra er stærsta utanvega hlaup á Íslandi og KIA Gullhringurinn er stærsta götu hjólamót á Íslandi en bæði fagna 10 ára afmæli í ár. Einar er giftur Áslaugu Thelmu Einarsdóttur MBA og þau eiga saman tvö börn, Klöru 15 ára og Einar 13 ára. Hann nam markaðsfræði við Mesa Community Collece og Arizona State University á árunum 1997 til 2000 og lauk MBA- prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012 Einar Bárðar

Myndbönd sem eins manns markaðsmaskínan Meðbyr vinnur í miðjum almannatengsla verkefnunum safnast upp á YouTube reikning...
11/02/2024

Myndbönd sem eins manns markaðsmaskínan Meðbyr vinnur í miðjum almannatengsla verkefnunum safnast upp á YouTube reikningi Meðbyrs. Töluvert af efni sem unnið var fyrir Klúbb matreiðslumeistara, sumt beint á þeirra miðla. Annað klippt fyrir fréttastofur og enn annað unnið sérstaklega fyrir matarvef Mbl.is sem sinnti fréttum að Ólympíuleikunum í matreiðslu afskaplega vel. Sjón er sögu ríkari.

Share your videos with friends, family, and the world

Íslenska kokkalandsliðið náði í 3 sæti á ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart en loka úrslitin voru tilkynnt rétt í ...
07/02/2024

Íslenska kokkalandsliðið náði í 3 sæti á ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart en loka úrslitin voru tilkynnt rétt í þessu á lokahátíð leikanna. Swiss hafnaði í öðru sæti en það voru frændur vorir Finnar sem hrepptu fyrsta sætið og eru því Ólympíumeistarar í matreiðslu í ár. Þetta jafnar árangur landsliðsins hér fyrir fjórum árum en þriðja sæti er besti árangur sem Ísland hefur náð á leikunum. Fimmtíu og fimm þjóðir tóku þótt í leikunum í ár.

Liðið keppti í tveimur keppnisgreinum. Fyrri keppnisgreinin fór fram á sunnudag, „Chef´s table“, tólf manna borð með 11 rétta matseðli og seinni greinin sem fór fram í gær þriðjudag i þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Liðið stóð sig mjög vel í báðum keppnisgreinunum og hlaut gull einkunn fyrir þær báðar en það þýðir að liðið skilaði meira en 91 stigi af 100 mögulegum. Lokaniðurstöður dómara eru hins vegar ekki birtar fyrr en á lokadegi sem var í gær og þá eru samanlögð stig fyrir báðar greinar lagðar saman og allar keppnisþjóðirnar bornar saman.

Síðustu ár hefur íslenska kokkalandsliðið náð mjög góðum árangri bæði á heimsmeistaramótinu og á Ólympíuleikunum. Það er afrakstur markvissrar vinnu til fjölda ára og metnaður bæði hjá Klúbbi matreiðslumeistara og liðsfólki

Önnur gull einkunn fyrir Ísland í Stuttgart Verðlaun fyrir heildar árangur seinna í dag Íslenska kokkalandsliðið hreppti...
07/02/2024

Önnur gull einkunn fyrir Ísland í Stuttgart
Verðlaun fyrir heildar árangur seinna í dag

Íslenska kokkalandsliðið hreppti aðra gull einkunn í morgun fyrir keppnisgrein gærdagsins á Ólympíuleikunum í Stuttgart. Þá hefur liðið hlotið gulleinkunn fyrir báðar keppnigreinarnar sínar á leikunum. Fyrri keppnisgreinin fór fram á sunnudag, „Chef´s table“, tólf manna borð með 11 rétta matseðli og í seinni greininni, sem fór fram í gær þriðjudag, átti að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Gull einkunn þýðir að liðið skilaði meira en 91 stigi af 100 mögulegum fyrir greinina. Lokaniðurstöður úr heildarstigagjöf dómara leikanna eru hinsvegar ekki birtar fyrr en seinni partinn í dag á lokaathöfn leikanna. Þá kemur í ljós hvaða þjóðir hreppa þrjú efstu sætin á leikunum í ár. Fimmtíu og fimm þjóðir eiga lið á leikunum.

Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgreinÍslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgreinina sem þ...
05/02/2024

Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgrein

Íslenska Kokkalandsliðið fékk gull fyrir fyrstu keppnisgreinina sem það keppti í á Ólympíuleikunum í Stuttgart í gær. Liðið kom til Þýskalands á fimmtudag en þá voru leikarnir settir. Í dag undirbýr liðið næstu keppnisgrein en hún fer fram á morgun.

Keppnisgreinin frá því í gær kallast "Chef’s table" en þá framreiðir landsliðið 7 rétta matseðil fyrir 12 gesti. Keppnisgrein morgundagsins er það sem kallað er "Restaurant of nations” sem er þriggja rétta kvöldverður fyrir 110 gesti. Það er góður andi í hópnum eftir gærdaginn í Stuttgart og eru nú saman komnir um það bil fimmtíu aðstandendur og vinir keppenda sem styðja hópinn dyggilega.

Íslenska kokka­landsliðið saman­stend­ur af reynslumiklu keppn­is­fólki og ein­stak­ling­um sem flest eru að fara að keppa á sínu fyrsta stór­móti. Liðstjóri Kokkalandsliðsins í ár er Ísak Aron Jó­hanns­son. Ísak hef­ur verið í landsliðshópn­um síðan 2019. Snæ­dís Xyza Mae Jóns­dótt­ir er landsliðsþjálf­ari en hún var liðstjóri í landsliðshópn­um sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíu­leik­um árið 2020 en það er besti árangur Íslands til þessa.

Íslenska Kokkalandsliðið gerir nú atlögu að Ólympíuverðlaunasæti. Liðið lenti í þriðja sæti hér í Stuttgart fyrir fjórum...
04/02/2024

Íslenska Kokkalandsliðið gerir nú atlögu að Ólympíuverðlaunasæti. Liðið lenti í þriðja sæti hér í Stuttgart fyrir fjórum árum sem er besti árangur liðsins til þessa. Sendið þessu öfluga fagfólki góða strauma og Áfram Ísland.

Fréttir frá Stuttgart
04/02/2024

Fréttir frá Stuttgart

Liðið hóf keppni klukkan 14:00 á staðartíma og lýkur leik um klukkan 23:00 á staðar í kvöld. Úrslit dagsins munu liggja fyrir um miðjan dag á morgun.

Meðbyr er að vinna með Íslenska Kokkalandsliðinu en það keppir núna á Ólympíuleikunum í Stuttgart. Við sinnum samskiptum...
03/02/2024

Meðbyr er að vinna með Íslenska Kokkalandsliðinu en það keppir núna á Ólympíuleikunum í Stuttgart. Við sinnum samskiptum við fjölmiðla og væntingarstjórnun heima og á vettvangi.

Ólymp­íu­leikarn­ir mat­reiðslu fara fram í Stutt­g­art í Þýskalandi, dag­ana 2. til 7. fe­brú­ar næst­kom­andi og munu ...
31/01/2024

Ólymp­íu­leikarn­ir mat­reiðslu fara fram í Stutt­g­art í Þýskalandi, dag­ana 2. til 7. fe­brú­ar næst­kom­andi og munu fær­ustu mat­reiðslu­menn heims keppa um stærstu verðlaun keppn­ismat­reiðslu.

Ólympíuleikarnir matreiðslu fara fram í Stuttgart í Þýskalandi, dagana 2. til 7. febrúar næstkomandi og munu færustu matreiðslumenn heims keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu.

Nýtt merki hannað af Oscari Bjarnasyni. E og M renna saman og verða segl sem fangar meðbyrinn. Smekklegt og formfast ein...
07/01/2024

Nýtt merki hannað af Oscari Bjarnasyni. E og M renna saman og verða segl sem fangar meðbyrinn. Smekklegt og formfast eins og flest þekktustu merki Oscars.

Address

Lyngási 14
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Meðbyr ráðgjöf og almannatengsl posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share