Kaupfjelag Nærsveitamanna

Kaupfjelag Nærsveitamanna hönnuður, þýðandi, þulur, tónlistarmaður og bara ýmislegt sem gæti gagnast...

11/08/2026

Nei eða já? Okkur er alveg sama. Við elskum ykkur öll!

Yndi allra landsmanna, Kaupfjelag Nærsveitamanna hefur lokið sumarfríi að sinni. Það hefur reyndar ekki verið nein lognm...
05/08/2026

Yndi allra landsmanna, Kaupfjelag Nærsveitamanna hefur lokið sumarfríi að sinni. Það hefur reyndar ekki verið nein lognmolla. Kaupfjelagsstjórinn er búinn að drekka heil ósköp af kaffi og aðeins smakkað ögn sterkari drykki - kakó og fleira. Kaupfjelagið er opið og allt í vaðandi fíling. Kíkið á www.kaupfjelag.com og kynnið ykkur starfsemina.

Hönnun, þýðingar og hlutir sem þú vissir ekki að þig vantaði

Heyrði, haldiði að Kaupfjelagsstjórinn eigi ekki afmæli í dag, 12. júlí. Af því tilefni gefur hann ykkur hlaðvarp.com ( ...
12/07/2026

Heyrði, haldiði að Kaupfjelagsstjórinn eigi ekki afmæli í dag, 12. júlí. Af því tilefni gefur hann ykkur hlaðvarp.com ( www.hladvarp.com ).
Hlaðvarpsveita sem er algerlega ókeypis til að byrja með. Hlaðvarpsveita fyrir alla þá sem hafa eitthvað að segja en tíma ekki að borga fyrir það og eru ekki með kostunaraðila.
Hægt er að sækja um hlaðvarp á vefnum eftir að hellings upplýsingar eru gefnar. Við yfirförum upplýsingarnar og látum vita þegar allt er klárt. Eftir 1. ágúst verður þetta þannig að þeir sem eru með auglýsingar eða kostanir þurfa að borga áskriift og ef fyrirtæki eða einkaaðilar eru gagngert að auglýsa sig og / eða varning sem þeir eru með þá er hægt að fara í sérsamning við Kaupfjelagsstórann. Verðskráin verður birt 1. ágúst.
Á vefnum er að finna meðal annars upptökubúnaðinn Cayennepod sem gefur þann möguleika að hlaðvarparinn taki bara upp á símann sinn og sendi hið snarasta inn í hlaðverpilinn. Skömmu síðar birtist það á fvefnum og líka á Spotify (eða ætti a.m.k. að gera það).

Hér koma smá leiðindi:
Allir þeir sem eru með meiðandi ummæli eða það sannast upp á þá ólöglegt athæfi gera þetta allt á eigin ábyrgð og ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja upptökur eða jafnvel heilu hlaðvörpin án þess að endurgreiða áskrift og að viðlögðum sektum - sem einnig verða kynntar 1. ágúst. Fram að því verður bara hent ef ritstjórn er misboðið.

Endilega fáið ykkur hlaðvarp

Íslensk hlaðvörp, nýjustu þættir og RSS tenglar á einum stað.

Og ekki nóg með að það sé kominn aðstoðarkaupfjelagsstjóri heldur höfum við enn fremur nælt okkur fleira fólk úr efstu h...
02/07/2026

Og ekki nóg með að það sé kominn aðstoðarkaupfjelagsstjóri heldur höfum við enn fremur nælt okkur fleira fólk úr efstu hillu - þaðan sem við sækjum okkar fólk eingöngu! Að ætla sér að setja inn færslur um alla væri mjög gjafmilt og fallegt en við látum það duga að sýna ykkur síðuna þar sem allur mannskapurinn er saman kominn. Kaupfjelagið er alvöru!
https://kaupfjelag.com/um-okkur/

Kaupfjelagið stækkar. Nú er kominn aðstoðarkaupfjelagsstjóri og hann heitir Styrmir B. Kristjánsson og má segja að hann ...
02/07/2026

Kaupfjelagið stækkar. Nú er kominn aðstoðarkaupfjelagsstjóri og hann heitir Styrmir B. Kristjánsson og má segja að hann hafi marga fjöruna sopið í hönnun og markaðssetningu. Hann er sérfræðingurinn að sunnan sem er ekkert svo rándýr og er pottþéttur upp á allar sínar 9 tær.. Velkominn til starfa Styrmir!

07/06/2026

Kaupfélagið verður lokað mánudag til miðvikudags vegna fyrri árshátíðarferðar starfsfólks.

21/05/2026

Tölvugarmurinn...


Hallur Guðmundsson

Beðist er velvirðingar á því að Kaupfjelagsstjórinn hefur haft í svo mörgu að snúast að hann hefur ekkert mátt vera að þ...
22/04/2026

Beðist er velvirðingar á því að Kaupfjelagsstjórinn hefur haft í svo mörgu að snúast að hann hefur ekkert mátt vera að því að skrifa inn einhvern óþarfa hér. Í dag er ástandið svipað... nema hann fékk smá lausa stund. Hann er búinn með fjóra kaffibolla og gengur um eins og fólk í árdaga kvikmynda, allt of hratt og hálf stefnulaust. En ástæða þessa póstar er til að tilkynna fyrra sumarfrí Kaupfjelagsins. Kaupfjelagið verður lokað frá morgundeginum (sumardeginum fyrsta) til mánudagsins næstkomandi vegna þess að Kaupfjelagsstjórinn ætlar að taka ekki bara stationhelgi heldur alveg stationhelgi með kerru og auðvitað drekka helling af kaffi og jafnvel fleiru. Sjáumst hress á þriðjudaginn!
[Meðfylgjandi er eldgömul mynd af Kaupfjelagsstjóranum]

Jæja elskurnar, það er langt síðan tíðindi voru sögð úr Kaupfjelaginu. Kaupfjelagsstjórinn hefur verið gríðarlega upptek...
15/04/2026

Jæja elskurnar, það er langt síðan tíðindi voru sögð úr Kaupfjelaginu. Kaupfjelagsstjórinn hefur verið gríðarlega upptekinn upp á síðkastið og bara nóg að gera. Það er alveg magnað hvað sum verk gefa mikið andlegt búst. En hvað um það. Kaupfjelagsstjórinn þarf aðeins að skyrpa í lófana og drífa sig með tvö frekar viðamikil verkefni sem eru á borðinu hjá honum því það bíða nokkur verkefni þegar því lýkur. Meira síðar. Kveðjur úr Kaupfjelagi Nærsveitamanna
( www.kaupfjelag.com )

Hjá Kaupfjelagi Nærsveitamanna sameinum við þýðingar, grafíska hönnun, textasmíð og skapandi ráðgjöf til að byggja upp heildræna framsetningu... milli kaffibolla

Það hefur komið í ljós að páskarnir fóru merkilega vel í Kaupfjelagsstjórann. Hann náði sér í nokkur aukagrömm á bumbuna...
08/04/2026

Það hefur komið í ljós að páskarnir fóru merkilega vel í Kaupfjelagsstjórann. Hann náði sér í nokkur aukagrömm á bumbuna og slakaði á eins og hann væri í sumarfríi. En hvað um það, skarfurinn mætti ekki í vinnu í gær því utan Kaupfjelagsins gerast víst hlutir líka. Stjórinn þurfti að skutla dóttur sinni og tengdasyni út á flugvöll á óheyrilega asnalegum vöknunartíma. Auðvitað fór Kaupfjelagsstjórinn heim og lagði sig. Eftir þann lúr þurfti hann svo að skutla stjúpa sínum og dömunni hans út á sama flugvöll en þessi tími var ekki asnalegur. Eftir það ætlaði stjórinn að koma við heima hjá sér, þar sem það er í uppsveitum Hafnarfjarðar og í beinni leið á skrifstofuna. En hann var það seinn fyrir að hann ákvað að taka fjarfund heima hjá sér við viðskiptavin. Restina af deginum vann hann heima hjá sér við drykkju margra kaffibolla og annarra skemmtilegheita. Í dag hófst svo dagurinn á því að Kaupfjelagsstjórinn fékk beiðni um "akút" verkefni um það bil sem hann ætlaði að strunsa út um dyrnar. Þá var bara um eitt að ræða, snarsnúa við og setjast við fartölvuna - enda ekki þörf á "tölvuverinu" við þetta verkefni. Svo kom bara annað verkefni og annað... og nú situr Kaupfjelagsstjórinn og skrifar þessa færslu... bíddu við... nóg að gera og samt verið að ranta á Facebook? Í Engihjallanum, þar sem Kaupfjelag Nærsveitamanna er staðsett (ásamt helling af smáfyrirtækjum) deilir Kaupfjelagsstjórinn skrifstofu með auglýsingastofunum SVART og Oggupons. Þar ráða ríkjum einhverjar mestu gæðakonur sem Kaupfjelagsstjórinn hefur kynnst. Alltaf allt á fullu en mórallinn fantagóður. Föstudagar eru hátíðisdagar hjá okkur og upp úr hádeginu er yfirleitt glaðst aukalega... Svo er að bætast liðsauki á skrifstofuna innan skammst þegar veitingaþjónusta flytur þangað. Eins gott að það verði ekki mikið af smakki því Kaupfjelagsstjórinn má varla við því. En það minnir okkur á... það er kominn matartími og verkefnin raðast inn akkúrat núna. Meira síðar.

Address

Engihjalli 8
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:30
Tuesday 09:00 - 15:30
Wednesday 09:00 - 15:30
Thursday 09:00 - 15:30
Friday 09:00 - 12:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kaupfjelag Nærsveitamanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share