HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir

HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir Vinnustofa Helgu Gerðar Magnúsdóttur, HGM.IS.

Til hamingju elsku Víkingur 🚀🚀🚀 Heiður að vinna hugmyndavinnu og hönnun fyrir þig ❤️❤️❤️
03/02/2025

Til hamingju elsku Víkingur 🚀🚀🚀 Heiður að vinna hugmyndavinnu og hönnun fyrir þig ❤️❤️❤️

Congratulations to Víkingur Ólafsson for his Grammy win! 🏆 🤩
___
First-time GRAMMY® nominee Víkingur Ólafsson had dreamed of recording J.S. Bach’s monumental Goldberg Variations for 25 years before the time felt right to him to go into the studio. The Icelandic pianist then devoted the entire 2023-24 season to a six-continent tour of the work. On its release, his album was met with widespread critical acclaim, with The Sunday Times noting, “In [Ólafsson’s] hands, Bach’s progression through aria and 30 variations becomes a metaphor for human experience. Personal yet universal, faithful yet radical, technically scintillating and emotionally uplifting, it’s a journey to the centre of the soul”.
___
💿 Rediscover the album now: dg.lnk.to/vikingur-goldberg

💙🤍❤️ Kosningadagur langt genginn og margir enn í vafa um hvað skuli kjósa. Það gleður hönnuð, stílista, propsara og meðh...
30/11/2024

💙🤍❤️ Kosningadagur langt genginn og margir enn í vafa um hvað skuli kjósa. Það gleður hönnuð, stílista, propsara og meðhöfund þessarar bókar að fólk er hins vegar ekki í nokkrum vafa með brauðtertuna og vinsældir hennar og þessarar bókar ganga þvert á flokka og deilumál. Það var sannur heiður og mikil ánægja að taka þátt í að skapa þetta verk sem virðist fanga þjóðarsálina og gleðja landsmenn. Ég segi því bara á þessum kosningadegi - húrra fyrir brauðtertunni, sameiningartákni þjóðar 💙🤍❤️

Loksins, loksins segja brauðtertuelskendur því nú er komin út íslensk brauðtertubók. Þó svo að Stóra brauðtertubókin komi ekki formlega út fyrr en nk. miðvikudag, sem er jafnframt Dagur íslensku brauðtertunnar, þá ríkir svo mikil eftirvænting fyrir bókinni að henni hefur verið dreift í verslanir um allt land. Í Stóru brauðtertubókinni má finna uppskriftir sem koma víða að, sígildar brauðtertur jafnt sem nýstárlegar, ásamt fróðleik og alls konar skemmtilegheitum.

Margir lögðu hönd á plóg við gerð bókarinnar, fyrst ber að nefna þau fjölmörgu sem deildu með okkur uppskriftum og einstakri ástríðu og svo eiga þau Erla Hlynsdóttir formaður Brauðtertufélags Erlu og Erlu, Friðrik V Hraunfjörð yfirkokkur, HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir hönnuður og Karl Petersson matarljósmyndari mikinn heiður skilinn fyrir að skila svo fallegri brauðtertubiblíu. Til hamingju öll ❤️

Nánar um bókina og útgáfutilboð hér:
https://sogurutgafa.is/vara/stora-braudtertubokin/

Þessa bók hannaði ég í afar gefandi samstarfi við Margréti Eggertsdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur, Hallgrímskirkju og Ská...
29/11/2024

Þessa bók hannaði ég í afar gefandi samstarfi við Margréti Eggertsdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur, Hallgrímskirkju og Skálholtsútgáfuna. Svo þakklát fyrir útkomuna og traustið 🥰
https://www.facebook.com/share/p/17zXpVAFCy/?mibextid=WC7FNe

HVAÐ VERÐUR FEGRA FUNDIÐ? What Can Be More Perfect?
Úrval úr sálmum og kvæðum sr. Hallgríms Péturssonar með enskum þýðingum

Hvað verður fegra fundið er úrval þess fjölbreytta kveðskapar sem liggur eftir sr. Hallgrím Pétursson (1614–1674), helsta skáld 17. aldar á Íslandi. Um er að ræða tvímálaútgáfu þar sem allir textarnir eru bæði á íslensku og í enskri þýðingu. Hallgrímur Pétursson er þekktastur fyrir Passíusálmana en hann orti kvæði og sálma af öllu tagi. Bókinni er ætlað að endurspegla það og má hér til dæmis finna heilræði, bænavers, ferðaljóð, ádeilu og náttúrulýsingar, auk þekktra erinda úr Passíusálmunum. Þegar Hallgrímur hafði lokið við Passíusálmana sendi hann þá fjórum konum sem tengdar voru háttsettum embættismönnum og óskaði þess að þær kæmu sálmunum á framfæri. Með þetta í huga voru fjórar konur fengnar til að velja sálma og kvæði í þessa bók. Það eru þær sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Margrét Eggertsdóttir sem jafnframt er ritstjóri. Reynt var að hafa úrvalið sem fjölbreyttast og velja yfirleitt stök erindi og vers fremur en heil kvæði. Passíusálmarnir (ýmist í heild eða hluti þeirra) hafa fimm sinnum verið þýddir á ensku og var hér farin sú leið að velja milli þessara þýðinga í hverju tilfelli fyrir sig. Annan kveðskap Hallgríms hefur Andrew Wawn, prófessor emeritus við háskólann í Leeds, þýtt með fáeinum undantekningum. Hönnun bókar: Helga Gerður Magnúsdóttir. Bókin fæst í Hallgrímskirkju, í verslunum Pennans - Eymundsson og í Kirkjuhúsinu í Bústaðakirkju. Og auðvitað á https://kirkjuhusid.is/collections/nyjar-baekur/products/hvad-verdur-fegra-fundid-urval-kvedskapar-sr-hallgrims-peturssonar

21/08/2024

Kápuna á Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum hannaði ég í gefandi samstarfi við hin frábæru Margrét Eggertsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Jóhannes Bjarna Sigtryggsson, Árni Heimir Ingólfsson hjá Stofnun Árna Magnússonar.

Mikill heiður að hanna merki fyrir Listhóp Reykjavíkurborgar sem í ár er sviðslistahópurinn Óður
25/03/2024

Mikill heiður að hanna merki fyrir Listhóp Reykjavíkurborgar sem í ár er sviðslistahópurinn Óður

29/02/2024

Please respect the law! 😅

05/12/2023

Stefán Máni og Steindór Ívarsson fengu rétt í þessu tilnefningar til Blóðdropans – íslensku glæpasagnaverðlaunanna fyrir bækur sínar Borg hinna dauðu og Blóðmeri! Innilegar hamingju óskir báðir tveir! 🤩🤩🤩

05/12/2023

Skemmtilegu dýrin sem eru ægileg en líka hlægileg, fyndin og furðuleg, skondin og skrítileg en fyrst og fremst forvitnileg! – eftir fróðleiksfúsu feðginin Veru Illugadóttur og Illuga Jökulsson skartar eflaust lengsta bókartitli ársins 😬 😬 😬 en hún er líka laaaangskemmtilegust og er komin í laangflestar bókaverslanir.
Þetta er bók fyrir dýravini á öllum aldri, stútfull af myndum, fróðleik og skemmtilegum frásögnum af dýrunum.
Kápuna fallegu hannaði HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir
👉 Nánar um bókina:
https://sogurutgafa.is/vara/skemmtilegu-dyrin/

27/11/2023

Kolbrún Bergþórsdóttir fjallar um bókina Skrímsli í sjó og vötnum á Íslandi eftir Þorvald Friðriksson í Morgunblaði helgarinnar. Bókin markar tímamót og er fyrsta heildstæða úttektin á þessum óþekktu dýrategundum í náttúru Íslands. Hún byggir á miklu safni frásagna og áratugalangri rannsókn þar sem höfundur hefur rætt við sjónarvotta og safnað hundruðum áður óskráðra lýsinga þeirra á þessum dýrum. Þessi fróðlega og skemmtilega bók er stútfull af myndum og merkilegum frásögnum og hún geymir einstakt menningarsögulegt efni um þennan heillandi þátt náttúrunnar. „Mjög forvitnileg bók!“ – Kristján Kristjánsson Sprengisandi / Bylgjunni. „Þau eru þarna úti, það er engum blöðum um það að fletta.“ – Dr. Hilmar J. Malmkvist / líffræðingur og forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands. Kápu hannaði HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir. Ragnheiður Þorgrímsdóttir málaði fjölda mynda í bókinni og á kortinu sem hér er.

Hrollvekjandi mæðgnasamstarf Sögur útgáfa
13/11/2023

Hrollvekjandi mæðgnasamstarf Sögur útgáfa

Address

Garðastræti 37
Reykjavík
101

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HGM / Helga Gerður Magnúsdóttir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share