Laufey Jónsdóttir, illustrator

Laufey Jónsdóttir, illustrator DESIGNER // ILLUSTRATOR

Bókin okkar, Matti og Maurún, hlaut tvær tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar! Í flokkunum myndskreytin...
14/04/2025

Bókin okkar, Matti og Maurún, hlaut tvær tilnefningar
til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar!

Í flokkunum myndskreytingar og þýðingar, en bókin er tvítyngd á ensku og íslensku.

Takk kærlega fyrir okkur!

Umsögn dómnefndar, myndlýsing:

Laufey Jónsdóttir tekur hér efni bókarinnar um maura á Íslandi og myndlýsir með fögru handbragði og nákvæmni. Formin leggjast yfir og undir hvort annað og litirnir flæða á milli. Hér er líka leikið með stærð og smæð, við sjáum Matta í gegnum sjónarhorn Maurúnar og Maurúnu í gegnum sjónarhorn hans. Í myndlýsingunum er að finna mýkt, þar sem vinátta og fróðleikur skín í gegn.

Umsögn dómnefndar, þýðing:

Síðasta tilnefnda bókin var svolítið flokkunar vandamál því hún hefði allt eins getað tilheyrt hópi frumsamdra skáldverka og í ákveðnum skilningi orðsins þá erum við að viðurkenna verk Marco Mancini sem skapandi höfundar og Andreas Guðmundssonar Gähwiller og Laufeyjar Jónsdóttur þýðenda með því að tilnefna bókina Matti og Maurún eða Matti and Antie, hulinn heimur íslenskra maura en í henni lýsir líffræðingurinn Mancini leynilegri mauranýlendu á íslenskum leikskólavelli en tilvist þeirra kemur eflaust flestum innfæddum íslendingum á óvart.

Höfundur: Marco Mancini
Myndhöfundur: Laufey Jónsdóttir

Þýðing og samhæfing texta: , Laufey Jónsdóttir og Marco Mancini

Útgáfa:

Matti og Maurún bókakápan mín hlaut tilnefningu til FÍT-verðlaunanna! Takk fyrir samstarfi Marco Mancini  og Jónas !Marc...
22/02/2025

Matti og Maurún bókakápan mín hlaut tilnefningu til FÍT-verðlaunanna!

Takk fyrir samstarfi Marco Mancini og Jónas !

Marco, thank you for bringing this magical project to me, it´s been a wonderful experience to work with you. You are one of the most passionate and enthusiastic person I have ever had the pleasure of working with!

Mæli með að fylgjast með Marco og uppátækjum hans hér á instagram eða á heimasíðunni hans https://maurar.hi.is/islenskir-maurar/

Vantar þig enn jólagjöfina?Ég var að taka til á vinnustofunni og hef nú tekið upp öll prentverkin mín, bæði gömul og ný!...
07/12/2024

Vantar þig enn jólagjöfina?

Ég var að taka til á vinnustofunni og hef nú tekið upp öll prentverkin mín, bæði gömul og ný! Þau eru til sölu á sérstöku tilboðsverði í von um að þau fái að komast úr skúffunni minni og inn á gott heimili.

Hafðu samband ef þú hefur áhuga – er með verkin í stúdíóinu okkar á Granda.

Verð 2.000 - 25.000 kr.

Takk fyrir komuna! Maurún og við eignuðumst marga nýja vini á sýningunni eins og sjá má. Við erum mjög þakklát fyrir áhu...
08/05/2024

Takk fyrir komuna! Maurún og við eignuðumst marga nýja vini á sýningunni eins og sjá má. Við erum mjög þakklát fyrir áhuga og þátttöku barna í sýningunni. Það var gaman að fylgjast með sýningunni vaxa og dafna með hverjum degi. Við munum varðveita þessi fallegu listaverk.

Takk fyrir okkur
og

Hönnunarferli maurabúsins okkar Marco! Á næstu vikum munu maurarnir flytja í nýja maurabúið sitt og í tilefni að því vor...
07/05/2024

Hönnunarferli maurabúsins okkar Marco! Á næstu vikum munu maurarnir flytja í nýja maurabúið sitt og í tilefni að því vorum við að velta fyrir okkur hvort við þurfum ekki að reyna að halda innflutningspartý fyrir áhugasama?

Innflutningsferlið getur verið tímafrekt, en maurarnir eru nú þegar búnir að fara í nokkra könnunarleiðangra um búið og lýst vel á.

Í framhaldi mun búið ferðast á sýningar, í menntaskóla og vonandi í náinni framtíð á alla leikskóla landsins ásamt bókinni (nú í styrktarumsóknarferli).

Hönnunin og efnisvalið byggir á reynslu og tilraunum Marco við smíði maurabúa. Kjarni búsins er úr Bauroc sem sumir þekkja úr byggingariðnaðinum sem ódýran milliveggjastein. Bauroc er úr hita- og þrýstihertri frauðsteypu, er létt en nógu sterkt til að maurarnir geti ekki grafið sig út og hentar einstaklega vel til að viðhalda rakastigi búsins með aðstoð sérstakra vatnsbóla.

Minnum á að í dag er síðasti dagur sýningarinnar í Epal Laugavegi 7, opið til kl.18.

Yfirlit yfir sýninguna okkar Marco. Lokadagur sýningarinnar er á morgun, þriðjudag. Opið báða daga kl.10:00 – 18:00 í kj...
06/05/2024

Yfirlit yfir sýninguna okkar Marco. Lokadagur sýningarinnar er á morgun, þriðjudag. Opið báða daga kl.10:00 – 18:00 í kjallara Laugavegi 7.

Á sýningunni geta ungir sem aldnir skoðað furðuverk mauraríkisins, sprelllifandi íslenska maura, unnið verkefni tengd maurum, rýnt í myndheim bókarinnar og nýja maurabúið sem við hönnuðum.

Viðburður: https://www.facebook.com/events/983073473217458

💥 Húrra! 💥Nú er bókin okkar lent í öllum helstu bókabúðum landsins! En hún hefur verið í forsölu í Epal meðfram sýningun...
05/05/2024

💥 Húrra! 💥

Nú er bókin okkar lent í öllum helstu bókabúðum landsins! En hún hefur verið í forsölu í Epal meðfram sýningunni.

Ég myndskreytti og hannaði bókina sem er tvítyngd, bæði á íslensku og ensku, með val um tvær forsíður.

Langar líka að vekja athygli á að nú styttist í sýningin okkar í Epal Laugavegi 7 klárist. Lokadagur sýningarinnar er á þriðjudaginn, 7. Maí.

"Á sýningunni geta börn skoðað furðuverk mauraríkisins, skoðað íslenska maura með berum augum í iðandi maurabúi, unnið verkefni tengd maurum, rýnt í myndheim bókarinnar og nýja maurabúið sem við hönnuðum."

Viðburður: https://www.facebook.com/events/983073473217458

//

Frekari upplýsingar fyrir áhugasama:

“Bókin er hugljúft ævintýri með Maurúnu og Matta þar sem lesandi kemst í kynni við ótrúlegan heim leynilegrar mauranýlendu á íslenskum leikskólavelli. Lesandi getur tekið þátt í einstakri vináttu sem er fyllt gleði, forvitni og sögum sem leiða í ljós mikil stórmerki undir fótum okkar”

Rithöfundurinn og líffræðingurinn Marco Mancini hefur rannsakað maura á Íslandi frá árinu 2019 og deilt undrum mauraheimsins í fjölmiðlum, á vefsíðunni „Maurar á Íslandi” og nú í þessari fallega myndskreyttu bók.

Þetta er önnur barnabók myndhöfundarins og grafíska hönnuðarins Laufeyjar Jónsdóttur. Fyrri bók hennar, „Milli svefns og Vöku”, hlaut tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar fyrir myndskreytingar og viðurkenningu frá Félagi íslenskra teiknara í flokknum myndlýsingasería.”

//

Meira um íslenska maura:

“Á Íslandi hafa fundist hátt í tuttugu og fimm mismunandi tegundir maura. Stundum finnast einungis stök bú en þó eru fjórar maurategundir sem skjóta hér oftar upp kollinum, þessar tegundir eru: húsamaur, blökkumar, faraómaur og draugamaur.

Talið er að allir þessir maurar hafi borist til landsins með mönnum, oft í farangri eða með plöntum.

Til þessa dags hafa einungis fáar rannsóknir verið framkvæmdar á maurum á Íslandi. Miðað við gögn síðustu 40 ára er þó ljóst að nýjum búum á Íslandi fjölgi stöðugt. Víst er líka að maurar geti haft mikil áhrif á umhverfið sitt.

Frekari upplýsingar á https://maurar.hi.is/islenskir-maurar/”

//

Saga og enskur texti: Marco Mancini
Teikningar og hönnun: Laufey Jónsdóttir
Íslensk þýðing: Andreas Guðmundsson
Sérfræðingur í kennslufræði: Caterina Poggi
Útgefandi: Bókafélagið

4 ára brúðkaupsafmæli! 💥💥💥💥
08/06/2023

4 ára brúðkaupsafmæli! 💥💥💥💥

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Laufey Jónsdóttir, illustrator posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Laufey Jónsdóttir, illustrator:

Share