Pipar\TBWA

Pipar\TBWA Alhliða auglýsinga- og markaðsstofa sem býður þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Við erum skrifstofa Pipar\TBWA í Reykjavík.

Einkennismerki okkar er Disruption® en með því stefnumótunartóli aðstoðum við vörumerki við að feta ótroðnar slóðir og skapa sérstöðu.

---

VIÐ FINNUM NÝJAR LEIÐIR

Pipar\TBWA á sér býsna langa sögu og hefðir. Fólkið okkar er á öllum aldri með alls konar bakgrunn og reynslu og af öllum landshornum. Við viljum heldur ekki hafa það öðruvísi því vörumerkin sem við vinnum með á hverjum degi eru einmitt þannig. Alls konar. Á Pipar\TBWA eru tískufrík og stjörnuhönnuðir, bíladellunörd og sagnfræðipælarar að ógleymdu tónlistarfólkinu og golfurunum – og tónlistarsmekkurinn er afskaplega breiður. En það eru ekki hefðirnar sem gilda til að ná til fólks enda er það ekki hlutverk okkar að gera eins og allir hinir, þvert á móti. Þú nærð til fólks með því að koma á óvart og gera öðruvísi, á einhvern skemmtilegan hátt. Þar liggur okkar meginhefð … við finnum nýjar leiðir. Enda er Disruption® kjarninn í því sem við gerum.

---

UM OKKUR

Við erum hluti af TBWA-auglýsingastofukeðjunni sem telur yfir 300 auglýsingastofur víðsvegar um heiminn. Þar með getum við skoðað árangur ótal herferða annarra TBWA-stofa til að læra af þeim og deila með viðskiptavinum okkar dýrmætri reynslu af markaðsstarfi erlendis. Við vinnum með hugmyndir alla daga og látum þær verða að veruleika. Vörumerki eru óaðskiljanlegur hluti af menningu okkar en lætin þarna úti eru mikil og ótal margt sem lokkar athygli neytenda. Til að vörumerki skíni og nái í gegn skipta hugmyndaauðgi og fagleg vinnubrögð öllu máli, því við viljum ná árangri fyrir viðskiptavini okkar. Við vinnum við birtingar auglýsinga á öllum hugsanlegum miðlum og til þess höfum við birtingaráðgjafana okkar hjá PiparMEDIA. Grunnurinn að hæfilegu auglýsingaáreiti liggur í markaðsrannsóknum og lífstílskönnunum ásamt faglegum vinnubrögðum við uppsetningu birtingaáætlana, þar sem þarf að finna hæfilega blöndu birtinga auglýsinga í sjónvarpi, útvarpi, prentmiðlum, stafrænum miðlum og samfélagsmiðlum. Við vinnum stafræna markaðssetningu frá A til Ö. Pipar\ENGINE heldur utan um þræðina sem liggja um vefmiðla og leitarvélar. Skýr stafræn stefnumótun og skýrir árangursmælikvarðar á stafrænar auglýsingaherferðir hafa skilað stórkostlegum árangri fyrir viðskiptavini okkar og nokkrum alþjóðlegum verðlaunum í hús. Við erum leiðandi í Evrópu á sviði stafrænnar markaðssetningar.

---

VERÐLAUN

Fyrir viðskiptavini okkar höfum við unnið til verðlauna fyrir auglýsingar og leitarherferðir. Fyrir KFC íslenskt í 40 ár auglýsingaherferðina, hlutum við ÁRU á Lúðrahátíðinni 2021 en ÁRA er veitt árlega fyrir árangursríkustu auglýsingaherferð ársins. Þar þurfa allir þættir sem máli skipta fyrir góðan árangur að fara saman; áætlanagerð, markaðsrannsóknir, birtingaáætlanir, hugmyndaauðgi og viðskiptastjórnun. Fyrir Lanullva sem er norskt fjölskyldufyrirtæki hlaut Pipar\ENGINE Evrópsku leitarverðlaunin í flokki tísku. Við höfum einnig hlotið verðlaun og verið tilnefnd til FÍT verðlaunanna, Glerljóns í Cannes, Clio verðlaunanna, Cresta verðlaunanna og ADC*E Art Directors Club of Europe.

Klaki. Nýjar umbúðir. Fyrir Gosfélagið.Letur: Booton
22/09/2026

Klaki. Nýjar umbúðir. Fyrir Gosfélagið.

Letur: Booton

21/09/2026

Við tókum púlsinn á nokkrum af fyrirlesurum RIMC og spurðum hvað stóð helst upp úr á ráðstefnunni 📢

Hvað stóð upp úr hjá þér? 👀

18/09/2026

Svona var RIMC 2026 🤩👏
Takk fyrir komuna!

RIMC 2026 💥Takk fyrir frábæran dag, stútfullan af innblæstri, áhugaverðum umræðum og framúrskarandi fyrirlestrum! 🙌Hlökk...
18/09/2026

RIMC 2026 💥

Takk fyrir frábæran dag, stútfullan af innblæstri, áhugaverðum umræðum og framúrskarandi fyrirlestrum! 🙌

Hlökkum til að sjá ykkur aftur næst!

11/09/2026

RIMC NÁLGAST – TRYGGÐU ÞÉR MIÐA! 📢

Reykjavik Internet Marketing Conference, er ómissandi viðburður fyrir öll þau sem vinna við eða hafa áhuga á stafrænni markaðssetningu og sýnileika á netinu. Ráðstefnan verður haldin í Smárabíói 17. september kl. 13.00 og enn eru nokkur sæti laus 👏

Að þessu sinni beinir RIMC sjónum sínum að því hvernig hægt er að ná forskoti á tímum framkvæmdandi gervigreindar (e. Agentic AI), en markaðsumhverfið gengur nú í gegnum sína stærstu umbreytingu til þessa. Spennandi erlendir og innlendir fyrirlesrar 🤩 Nánar á rimc.is.

Segðu SÍBS ❤️Í hverjum mánuði fá mörg hundruð manns vinning í Happdrætti SÍBS og hundrað útskrifast úr endurhæfingu á Re...
10/09/2026

Segðu SÍBS ❤️

Í hverjum mánuði fá mörg hundruð manns vinning í Happdrætti SÍBS og hundrað útskrifast úr endurhæfingu á Reykjalundi. Þessi órjúfanlegu tengsl happdrættisins og Reykjalundar mynda kjarnann í herferð Happdrættis SÍBS, en án þess væri ekki mögulegt að taka á móti fólki í endurhæfingu og aðstoða það við að komast aftur út í lífið eftir slys eða veikindi – sem er auðvitað stærsti vinningurinn af þeim öllum, sá sem kallar fram breiðasta brosið. Það þekkja þau sem koma fram í auglýsingunum. Þau hafa öll lokið endurhæfingu á Reykjalundi, eða eiga miða í happdrættinu – og sum hvort tveggja.

Svenni Speight leikstýrði og ljósmyndaði, Bergþór Pálsson les og Biggi Tryggva endurútsetti Söng SÍBS eftir Oddgeir Kristjánsson, sem ómar undir efninu. Sérstakar þakkir fá módelin, þau Katrín, Nadía, Ásgeir og Karim, fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur.

Hver er þín KFC-saga? 🍗🐔KFC hefur verið hluti af íslensku samfélagi frá árinu 1980 eða í 46 ár. Flest okkar eiga frásagn...
05/09/2026

Hver er þín KFC-saga? 🍗🐔

KFC hefur verið hluti af íslensku samfélagi frá árinu 1980 eða í 46 ár. Flest okkar eiga frásagnir sem við tengjum KFC, venjur eða sérviskur, og í nýrri herferð fengum við módelin til að segja okkur sínar sönnu KFC-sögur. Úr varð mjög skemmtilegur dagur sem framkallaði bæði bros og hlátur viðstaddra og ljóst að af nógu er að taka. Nú er bara að sjá hvað gerist næst ❤️🤍

Sveinn Speight hafði yfirumsjón með kvik-og ljósmyndun.

Treyjudagur 💙✨ Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með, í dag erum við öll saman í liði!  fyrir börn með krabbame...
04/09/2026

Treyjudagur 💙✨ Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með, í dag erum við öll saman í liði!

fyrir börn með krabbamein 👉🏻 leggðu þitt af mörkum á treyjudagur.is

Ferskur fókus Arons Can 🩶Ísey Skyr Bar hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að færa okkar aldagömlu hefðir inn í nútí...
28/08/2026

Ferskur fókus Arons Can 🩶

Ísey Skyr Bar hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að færa okkar aldagömlu hefðir inn í nútímann með frískandi, litríkum og bragðgóðum skálum, söfum og boozti, þar sem undirstaðan er hið holla og þjóðlega íslenska skyr 🙌 💫

Ísey Skyr Bar gekk í gegnum endurmörkun hjá okkur snemma árs þar sem frískað var upp á ásýnd til að fanga enn frekar orkuna og ferskleikann sem einkennir staðina 🍓🍏

Þau fengu svo tónlistarmanninn, sjónvarpsþáttaleikarann, lífskúnstnerinn og orkuboltann Aron Can til að setja saman skál, sem hlotið hefur nafnið Ferskur fókus. Miklar pælingar og flóknar, vísindalegar tilraunir Arons skiluðu sér að lokum í þessari girnilegu og bragðgóðu próteinbombu 😋

Ljósmyndir og myndbönd fyrir Ferskan fókus tók Sigurður Pétur Jóhannsson.

Góðgerðapizzuveisla frá   í hádeginu í dag 🍕❤️💙Við tókum áskoruninni frá vinum okkar á   og gúffuðum í okkur ljúffengum ...
27/08/2026

Góðgerðapizzuveisla frá í hádeginu í dag 🍕❤️💙

Við tókum áskoruninni frá vinum okkar á og gúffuðum í okkur ljúffengum sneiðum til styrktar 🤤😋

Þegar þetta er skrifað hafa safnast 5.528.929 kr. en við vitum að okkar ástkæra og pizzuelskandi þjóð getur vel komið tölunni yfir 6 milljónir 🙌

Í dag er síðasti dagurinn til að næla sér í þessa gómsætu pizzu og styrkja þar með gott málefni, en öll sala Góðgerðarpizzunnar rennur óskipt til Gló styrktarfélags 💫

Address

Guðrúnartún 8
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3545109000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pipar\TBWA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Pipar\TBWA:

Shortcuts

Share