04/09/2026
"Fyrirtæki verða ekki verðmætari bara með því að lækka kostnað. Fyrirtæki verða verðmætari með því að skapa eitthvað sem fólk vill kaupa. Eitthvað sem það langar í, eitthvað sem það þarf, sem það man eftir, sem hreyfir við því, sem það deilir og jafnvel elskar." Okkar eini sanni Hrafn Gunnarsson með frábæra grein á Vísi um notkun gervigreindar í auglýsinga- og sköpunarstarf.
Í síðustu viku var lítið rætt um annað en ESB, fyrir utan gervigreindarauglýsingu MS auðvitað. Það skipti litlu hvort fólk var já eða nei, fæstir voru hrifnir af þessu útspili og mörgum fannst illa komið fyrir íslenska ostadrengnum Gotta.