Prentmet Oddi

Prentmet Oddi Það starfa skemmtilegir og metnaðarfullir snillingar hjá Odda og sinna þar kröfuhörðum viðskiptavinum með allt sem varðar prentþjónustu.

Við erum á ICH Fish 2026 í Fífunni, bás P‑41 með okkar vinum í Efniskaup. Við erum að sýna þær lausnir sem við getum boð...
23/09/2026

Við erum á ICH Fish 2026 í Fífunni, bás P‑41 með okkar vinum í Efniskaup. Við erum að sýna þær lausnir sem við getum boðið íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum og matvælaframleiðendum í umbúðum 😊

Heitir og kaldir drykkir og áhugavert spjall bíða ykkar við sýningarbásinn 😊☕️🍺🥨

Prentmet Oddi hefur keypt prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.Með kaupum Prent...
22/09/2026

Prentmet Oddi hefur keypt prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.
Með kaupum Prentmet Odda á félaginu skapast rekstrargrundvöllur til að halda úti starfsemi á Austurlandi og þjónusta vel þennan landshluta.

Prentmet Oddi er í dag með starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu ásamt útibúum á Norðurlandi og Suðurlandi. Samtals starfar félagið nú í yfir 9.500 fermetrum og er með tæplega 80 starfsmenn. Félagið býður upp á heildarlausnir í umbúðum og prentun og nú fá íbúar Austurlands að njóta aukins vöruframboðs í hinum ýmsu vöruflokkum Prentmet Odda.

Saga Héraðsprents hófst árið 1972 þegar hjónin Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir stofnuðu félagið í litlum bílskúr á Egilsstöðum. Með árunum óx félagið og dafnaði og hefur verið staðsett í hjarta bæjarins á Egilsstöðum, að Miðvangi 1 sl. 25 ár. Líkt og Prentmet Oddi er félagið Svansvottað og hefur verið þekkt fyrir góða þjónustu og góð gæði.

Eigendur Prentmet Odda vilja þakka þeim hjónum Gunnhildi og Þráni fyrir frábært samstarf í gegnum árin og megi komandi tímar verða þeim ánægjulegir.

Prentmet Oddi hefur yfirtekið prentsmiðjuna Héraðsprent á Egilsstöðum ásamt 520 fermetra fasteign félagsins.

Hlökkum til að sjá ykkur á Sjávarútvegssýningunni í Fífunni 22.-24. september😊🐟
17/09/2026

Hlökkum til að sjá ykkur á Sjávarútvegssýningunni í Fífunni 22.-24. september😊🐟

Prentmet Oddi is one of Iceland’s leading packaging firms, employing around 70 people.

Við mættum nokkur gulklædd í vinnuna til að vekja athygli á Gulum september og þá er lögð áhersla á að auka meðvitund fó...
17/09/2026

Við mættum nokkur gulklædd í vinnuna til að vekja athygli á Gulum september og þá er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika 💛

Óskum eftir prentsmið í stafræna prentun í höfuðstöðvar okkar á Lynghálsi 1 í Reykjavík 😊
16/09/2026

Óskum eftir prentsmið í stafræna prentun í höfuðstöðvar okkar á Lynghálsi 1 í Reykjavík 😊

Prentsmið óskast í stafræna prentun

🇭🇺🤝🇮🇸 Ungverskir prentiðnaðarmenn heimsóttu Prentmet OddaPrentmet Oddi tók nýverið á móti um 16 sérfræðingum frá Samband...
12/09/2026

🇭🇺🤝🇮🇸 Ungverskir prentiðnaðarmenn heimsóttu Prentmet Odda
Prentmet Oddi tók nýverið á móti um 16 sérfræðingum frá Sambandi ungverskra prent- og pappírsiðnaðarfyrirtækja(Federation of Hungarian Printers and Paper Makers). Gestirnir fengu kynnisferð um prentsmiðjuna, fræddust um starfsemina og skoðuðu framleiðsluna.
Í kjölfarið áttu hóparnir gott spjall um þróun prentiðnaðarins, sameiginleg áhugamál og áskoranir greinarinnar.
Heimsóknin var bæði fróðleg og ánægjuleg og skapaði tækifæri til að styrkja tengsl og efla faglegt samstarf milli Íslands og Ungverjalands. Ungversku fulltrúanir boðuðu að taka á móti fulltrúum Prentmet Odda í Ungverjalandi. Við þökkum þeim fyrir góð samskipti og heimsóknina og erum spennt að koma í heimsókn til þeirra. 💙

Í dag héldum við upp á Treyjudaginn til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra ❤️Við mættum í treyjum, tó...
04/09/2026

Í dag héldum við upp á Treyjudaginn til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra ❤️
Við mættum í treyjum, tókum myndir og vöktum athygli á mikilvægu málefni - Við erum öll saman í liði ❤️

Prentmet Oddi er komið í samstarf við fjarskiptafélagið Nova um net- og símamál. Með samstarfinu styrkjum við fjarskipta...
26/08/2026

Prentmet Oddi er komið í samstarf við fjarskiptafélagið Nova um net- og símamál. Með samstarfinu styrkjum við fjarskiptalausnir fyrirtækisins og tryggjum enn betri tengingar í daglegum rekstri.

Við hlökkum til samstarfsins — enda skiptir gott samband öllu máli! 🚀☎️😊

🚀 Við erum að leita að öflugum prentara í offsetprentun!Vegna mikils álags leitum við að prentara til starfa í offsetpre...
24/08/2026

🚀 Við erum að leita að öflugum prentara í offsetprentun!

Vegna mikils álags leitum við að prentara til starfa í offsetprentun hjá Prentmet Odda.

Prentmet Oddi er stærsti framleiðandi landsins á kartonumbúðum, almennu prentverki og bókum. Við eigum jafnframt í samstarfi við öfluga umbúðaframleiðendur víðs vegar um Evrópu og getum því boðið viðskiptavinum okkar heildarlausnir á sviði umbúða.

Í áratugi höfum við þjónustað mörg af kröfuhörðustu fyrirtækjum landsins – með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi.

Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttu og krefjandi starfi í öflugu umhverfi, þá viljum við heyra frá þér! 🖨️

👉 Nánari upplýsingar og umsókn eru á Alfreð.

Prentari óskast á offsetprentvélar

Prentmet Oddi fjárfesti nýlega í 521 fm húsnæði fyrir útibú félagsins á Akureyri. Um er að ræða neðri hæðina á Furuvöllu...
11/08/2026

Prentmet Oddi fjárfesti nýlega í 521 fm húsnæði fyrir útibú félagsins á Akureyri. Um er að ræða neðri hæðina á Furuvöllum 5 sem hýsti áður rekstur Ormsson á Akureyri. Reksturinn mun því halda óbreyttri mynd í nýju húsnæði en gefa frekari möguleika á að lagera ýmsar umbúðalausnir og þar með lækka sendingarkostnað og auka afhendingaröryggi fyrir fyrirtæki á Norðurlandi.

Sömuleiðis gekk félagið frá kaupum á 945 fm vöruhúsi í Hafnarfirði með um 10 metra lofthæð í hæsta punkti. Um er að ræða Straumhellu 12 og mun reksturinn geta lagerað þar yfir 1.500 vörubretti. Húsnæðið kemur því til með að styðja við öran vöxt félagsins á bylgjukössum og öðrum innfluttum umbúðum.

Í dag starfar félagið í alls 8.766 fm, þ.e. 8.045 fm á höfuðborgarsvæðinu, 521 fm á Akureyri og 200 fm á Selfossi.

Frétt frá Prentmet Odda

Address

Lynghálsi 1
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545600600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Prentmet Oddi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Prentmet Oddi:

Shortcuts

Share