FURA media

FURA media Við tengjum vörumerki og fyrirtæki við réttu áhrifavaldana og hlaðvörpin með áherslu á einlægt efni.

FURA media er margmiðlunarstofa með það að markmiði að skapa samfélag þar sem fólk og fyrirtæki segja sögu sína af heiðarleika og einlægni.

Hvað á ég að rukkað fyrir samstarf?Þetta er algengasta spurningin sem ég hef fengið eftir að ég stofnaði Furu. Því mikið...
17/09/2026

Hvað á ég að rukkað fyrir samstarf?

Þetta er algengasta spurningin sem ég hef fengið eftir að ég stofnaði Furu. Því mikið af fólki veit ekki hvernig þau eiga að rukka fyrir vinnuna sína.

Fyrirtæki sömuleiðis eru óviss hvað er sanngjarnt að greiða fyrir og jafnvel biðja um á móti. Það er því ótrúlega mikilvægt að skilgreina þetta allt fyrirfram áður en samstarfið hefst. Hvað á að greiða og hverjar afurðirnar eru.

Þegar kemur að efnissköpurum er svarið mitt alltaf: ,,hvað viltu fá greitt fyrir vinnuna þína? Hvernig geturu tryggt að þetta verkefni gefi þér meira en það tekur?”

Það er virkilega erfitt að setja tölu á áhrif, fylgjendafjölda, stakt myndband eða hvernig verkefnið mun ganga.

Eina vitið er því að setja upp grunn að verðskrá sem þér finnst vera sanngjörn. Bæði fyrir fyrirtæki og efnisskapara. Báðir aðilar samstarfsins þurfa að græði á því.

Ef þú vilt vita vita hvernig verðskrá eða jafnvel miðlamappa (e. media kit) ætti að líta út máttu endilega senda á mig skilaboð: FURA MEDIA | margmiðlunarstofa🌿

Eru gildi ekki bara flöff?Gildi eiga ekki bara að vera þrjú falleg orð sem eru sett á vefsíðu og svo gleymd.Fyrir mér er...
24/08/2026

Eru gildi ekki bara flöff?

Gildi eiga ekki bara að vera þrjú falleg orð sem eru sett á vefsíðu og svo gleymd.

Fyrir mér eru þau grunnurinn sem fyrirtækið er byggt á sem og allar ákvarðanir tekanr út frá.

Gildi Furu koma beint frá mínum eigin gildum og endurspegla hvernig mig langar að vinna, skapa og eiga í samstarfi við fólk í gegnum Furu. Þau eiga að sjást í því hvernig ég vinn og hvernig efni ég skapa á miðlum Furu. Ásamt því að vera innblástur fyrir því hvernig Fura þróast.

Því markmiðið er að skapa samfélag þar sem fólk og fyrirtæki geta sagt sína sögu af heiðarleika og einlægni.

Þannig að nei, fyrir mér eru gildi ekki bara flöff. Þau eru grunnurinn og nú tekur við að byggja áfram ofan á hann.

FURA MEDIA er eins árs í dag!🥳Það var virkilega súrealískt að stofna Furu heima í sófanum fyrir ári síðan þegar ég var k...
22/07/2026

FURA MEDIA er eins árs í dag!🥳

Það var virkilega súrealískt að stofna Furu heima í sófanum fyrir ári síðan þegar ég var komin tæpar 20 vikur á leið. Mig hefði aldrei órað fyrir öllu því sem ég myndi læra og því sem að ég hef áorkað með öllu fólkinu og Furu á þessu eina ári.

Eins og komið hefur fram er ég að breyta þjónustuframboðinu hægt og rólega samhliða því að vera vinna samhliða fæðingarorlofi. Ég er nefnilega að þroskast og þróast enda er ég læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Ég er líka að prófa mig áfram með allskonar efni á samfélagsmiðlum. Því það er satt sem þau segja þú verður að framkvæma og læra svo af því og rýna gögnin. Það á sérstaklega við um markaðsmál og hvað þá í eigin rekstri.

Ég get lofað ykkur því að þetta kúreka útlit er ekki komið til að vera. EN ef það er eitthvað sem þetta ár hefur kennt mér þá er það að hætta taka hlutunum svona rosalega alvarlega. Stundum er bara eina vitið að senda skilaboðin út í kosmósið og sjá hvað kemur til baka.

Hugarfarið fyrir ári síðan er allt annað en ég er enn á því að fyrst þurfa hlutir að verða TIL áður en maður getur gert þá betri. Að því sögðu fylgist með öllu framundan því hver veit nema það verði einhverjar uppfærslur👀

Í gær, 19.júlí vann Spánn HM. En það er ekki það sem við munum muna frá mótinu.Við munum muna fólkið sem náði athygli ok...
20/07/2026

Í gær, 19.júlí vann Spánn HM. En það er ekki það sem við munum muna frá mótinu.

Við munum muna fólkið sem náði athygli okkar á meðan mótinu stóð. Líka þau sem voru löngu dottin úr keppni þegar úrslitaleikurinn LOKSINS fór fram.

Það er auðvelt að afgreiða áhrifavaldamarkaðssetningu sem afsláttarkóða, senda gjafir eða finna fólk með marga fylgjendur. Það er samt samhengi og menningin sem getur gert það svo MIKLU skemmtilegra.

Áhrifavaldar hafa alltaf verið til. Samfélagsmiðlar gerðu hlutverkið einfaldlega sýnilegra og aðgengilegra fleirum.

Fyrirtæki þurfa því að hætta að horfa eingöngu á fylgjendatölur og finna skemmtilegu tenginguna sem mun skilja eitthvað eftir og þar með gera samstarfið og vörumerkið eftirminnilegt.

Hver nær raunverulega til fólksins sem þið viljið tala við? Af hverju hlustar fólk á þessa manneskju? Hvað fær hún fólk til að hugsa, gera eða kaupa? Og passa skilaboðin við skilaboðin okkar?

Stærsti áhrifavaldurinn er ekki alltaf rétti áhrifavaldurinn.

Ronaldo nær til fleiri en Haaland. En það þýðir ekki að Ronaldo sé sjálfkrafa betri kostur fyrir öll fyrirtæki. Rétta samstarfið ræðst af markmiðinu, markhópnum, samhenginu og því hvers konar áhrif fyrirtækið vill skapa.

Ég get ímyndað mér að miklu fleiri eru að heyra í Haaland núna er Ronaldo þó svo að það muni hundruðum MILLJÓNA á fylgjendunum.

Þetta er ekki bara spurning um frægð eða sýnileika heldur hvernig þau nýta sér hana og hvernig áhrif þau hafa á fylgjendurna sína.

Viltu skoða hvernig áhrifavaldar geta nýst í þinni markaðssetningu? Sendu mér skilaboð💌

Af hverju höldum við ekki bara áhrifavaldaviðburð?Mikið er gert grín að áhrifavaldaviðburðum enda er ótrúlega auðvelt að...
09/07/2026

Af hverju höldum við ekki bara áhrifavaldaviðburð?

Mikið er gert grín að áhrifavaldaviðburðum enda er ótrúlega auðvelt að klúðra þannig viðburðum. Ég vil nefnilega meina að það er list að halda góðan viðburð.

Það skiptir öllu máli að skoða hver tilgangurinn með viðburðinum er því í upphafi skal endinn nefnilega skoða.

Áhrifavaldamarkaðssetning er flókin til að byrja með og hvað þá þegar þú bætir listinni að halda góðan viðburð sem virkilega skilir eitthvað eftir sig við, þá verður uppskriftin ennþá flóknari.

Ég mæli því alltaf með að byrja á því að spyrja: ,,af hverju ertu að halda viðburðinn?” og ,,hvað viltu skilja eftir?” Bæði þegar kemur að gestum og þeim sem svo sjá viðburðinn.

Ekki bjóða fólki sem tengir ekki við það sem er að fara fram og þar er mikilvægt að tilgangurinn sé skýr. Því þú verður alltaf að skilja eitthvað eftir, hvort sem það er upplifun, skilaboð, hvatning til athafna eða já tilfinning.

Endilega fylgdu Furu hér á Facebook ef þú vilt vita meira um áhrifavaldamakarðassetningu.

Dýrmætt að sjá Furu samfélagið verða að veruleika, takk fyrir samveruna öll sem mættuð í síðustu viku💚✨
07/07/2026

Dýrmætt að sjá Furu samfélagið verða að veruleika, takk fyrir samveruna öll sem mættuð í síðustu viku💚✨

Hverjir voru hvar?

Ég bjóst við svakalegri herferð þegar Anna Fríða markaðsstjóri Nóa Siríus talaði um það í viðtali í Teboðinu að hennar u...
04/07/2026

Ég bjóst við svakalegri herferð þegar Anna Fríða markaðsstjóri Nóa Siríus talaði um það í viðtali í Teboðinu að hennar uppáhalds auglýsing væri ekki komin í loftið.

Mig óraði samt ekki að hún myndi taka yfir allt íslenska sumarið. En það tókst þeim alveg eins og Coca Cola hefur gert.

Það er nefnilega málið með að virkja fólkið og tikka inn í hjarðhegðun Íslendinga. Nói Siríus stimplaði sig rækilega inn enn eina ferðina.

Ég óska öllum sem koma að herferðinni innilega til hamingju með árangurinn.

Endilega fylgið Furu fyrir frekari innsýn inn í markaðssetningu á Íslandi með áherslu á áhrifavalda.

30/06/2026

Hittumst í kaosinu: hvert stefnum við í áhrifavaldamarkaðssetningu?

Nei sko ég er í skýjunum eftir fyrsta Furu viðburðu ársins. Hann var haldinn með pompi og prakt í Fantasíu salnum, mánudaginn 29. júní.

Markmið viðburðarins var að tengja saman samfélagið í kringum áhrifavalda og minnka kaosið. Við vildum staldra við, deila reynslu og ræða hvert áhrifavaldamarkassetning er að fara og hvað við getum gert til að byggja hana enn betur upp.

Á viðburðinum veittum við Helgi Ómars innsýn inn í vegferðina okkar. Helgi fór yfir hvað hann stendur fyrir og afhverju. En ég sagði frá því hvernig Fura hefur þroskast og hvað er framundan.

Mér finnst svo mikilvægt að áhrifavaldar geti speglað þig í kollegum sínum og finna stuðning í hvort öðru þar sem þessi starfsvettvangur getur ótrúlegt en satt verið einangrandi.

Kvöldið endaði á magnaðri tengslamyndun þar sem við áttum ótrúlega dýrmæt samtöl. Takk fyrir komuna, fallegu hrósin, traustið og fyrir að vera partur af Furu samfélaginu💕✨

Efnissköpun: 🧚

Takk & fyrir að gera okkur kleift að gera gestum auðveldara fyrir að skrifa niður og framkvæma allar dýrmætu hugmyndirnar sínar🪽✍️

Address

Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when FURA media posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share