15/04/2025
Tvær tilnefningar! Í gær hlaut bókin Matti og Maurún, eftir Marco Mancini og Laufeyju Jónsdóttur hjá Konsept, tvær tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokkunum myndskreytingar og þýðingar, en bókin er tvítyngd á ensku og íslensku.
Bókin hlaut einnig tilnefningu til bestu bókakápunar hjá FÍT í febrúar.
Umsögn dómnefndar, myndlýsing:
Laufey Jónsdóttir tekur hér efni bókarinnar um maura á Íslandi og myndlýsir með fögru handbragði og nákvæmni. Formin leggjast yfir og undir hvort annað og litirnir flæða á milli. Hér er líka leikið með stærð og smæð, við sjáum Matta í gegnum sjónarhorn Maurúnar og Maurúnu í gegnum sjónarhorn hans. Í myndlýsingunum er að finna mýkt, þar sem vinátta og fróðleikur skín í gegn.
Umsögn dómnefndar, þýðing:
Síðasta tilnefnda bókin var svolítið flokkunar vandamál því hún hefði allt eins getað tilheyrt hópi frumsamdra skáldverka og í ákveðnum skilningi orðsins þá erum við að viðurkenna verk Marco Mancini sem skapandi höfundar og Andreas Guðmundssonar Gähwiller og Laufeyjar Jónsdóttur þýðenda með því að tilnefna bókina Matti og Maurún eða Matti and Antie, hulinn heimur íslenskra maura en í henni lýsir líffræðingurinn Mancini leynilegri mauranýlendu á íslenskum leikskólavelli en tilvist þeirra kemur eflaust flestum innfæddum íslendingum á óvart.
Matti og Maurún - Hulinn heimur íslenskra maura:
„Leggðu af stað í hugljúft ævintýri með Maurúnu og Matta til að komast í kynni við ótrúlegan heim leynilegrar mauranýlendu á íslenskum leikskólavelli. Taktu þátt í sérstakri vináttu þeirra sem er fyllt gleði, forvitni og sögum sem leiða í ljós mikil stórmerki undir fótum okkar.“
Rithöfundur: Marco Mancini
Myndhöfundur: Laufey Jónsdóttir
Þýðing og samhæfing texta: Andreas Gahwiller, Laufey Jónsdóttir og Marco Mancini
Útgáfa: